Flýtilyklar
Velkomin(n)
Heimasíða Skógakotsfólksins
Nýjustu fréttir
-
Rikharđ Atli og Sólveig Erla á Suđureyri
Almennt - miđvikudagur 3.jún.09 10:53 - Oddur Hafsteinsson - Lestrar 81 - Athugasemdir (0)Nú eru Rikharð Atli og Sólveig Erla búin að vera í viku hjá Ömmu Sinni á Suðureyri. þau munu vera í hálfan mánuð svona fyrst um sinn og síðan koma þau heim, en hversu lengi þau verða hjá okkur og vilja fara aftur vestur veit maður aldrei. En Rikharð Atli fer víst í sveit hjá henni Helgi í Botni eitthvað í sumar,,, drengurinn orðinn matvinnungur..
-
Ţökulagningu lokiđ í bakgarđinum
Almennt - mánudagur 25.maí.09 13:10 - Oddur Hafsteinsson - Lestrar 103 - Athugasemdir (0)Jæja þá er þökulagningu lokið á bakgarðinum, fór seinnipartur sunnudagsins í það og gekk þetta með ágætum.
Anna Gréta kíkti við og var með okkur frameftir degi. Amma Sússy kom með hin frændsystkynin og fór með allt gengið á draugasafnið, en þurfti að fara frá með miklum flýti þar sem hún ákvað að stinga sér til sunds í silungapollinum ásamt henni Petru. Urðu þær blautar upp fyrir haus. Mun forsjármaður safnsins ennþá vera að jafna sig eftir augnaráð sem hún fékk frá þeirri gömlu og fyrir þá sem þekkja hana getur hún drepið risagórillu með augnaráðinu einu.
Góð helgi þar sem mikið var framkvæmt.
-
Langur laugardagur
Almennt - mánudagur 25.maí.09 12:37 - Oddur Hafsteinsson - Lestrar 132 - Athugasemdir (0)Eftir frábært gærkvöldi með Önnu Grétu var farið snemma á lappir og drifið sig austur að Spreðli til þess að sóna og gelda.
Nótt gamla var geld og alveg komin að því að ganga svo hún var drifin undir Ás frá Ármóti. Vonandi kemur eitthvað skemmtilegt út úr þessu. 111 í kynbótamat og það er nú ágæt fyrst merin er nú ódæmd en hefur verið að gefa ágætt en líklega er það ómarkviss pörun eigandans sem ræður það meiru um heldur en hitt. En þegar þessu var lokið var farið í að gelda son Þyts frá Neðra Seli og Nóttar frá Búðarhól.Þegar heim var komið eftir morgunverkin var farið í að undirbúa þökulagningu bakgarðsins. Var unnið í því frameftir kvöldi og þá birtist Ingibjörg Páls og borðaði með okkur.
-
Anna Gréta var flott í ungfrú Ísland
Almennt - mánudagur 25.maí.09 12:19 - Oddur Hafsteinsson - Lestrar 115 - Athugasemdir (0)Anna Gréta tók þátt í ungfrú Ísland núna um helgina og stóð sig frábærlega. Kom hún fram eins og aðrar í nærfötum , síðan komu nokkrar tískusýningar og síðan í síðkjól. Anna Gréta hefur stundað ræktina á fullu og mátti sjá miklar framfarir hjá henni. Meiri hluti fjölskyldunnar mætti á staðinn og studdi hana um kvöldið. Auðvitað var þetta bara vinnumistök eins gamall vinur okkur segir oft "Elli Sig".
Látum fylgja hérna nokkrar myndir af keppninni.
-
Óli bróđir fluttur út
Almennt - föstudagur 9.jan.09 10:16 - Oddur Hafsteinsson - Lestrar 135 - Athugasemdir (0)Óli bróðir er nú fluttur út til danmerkur til þess að sækja vinnu. Óli hefur stundað pípulagnir undanfarin ár og var farin að finna fyrir skorti á verkefnum. Við vonum að honum gangi vel og munum sakna hans mikið.
Leit
Nýtt á vefnum
Heimsóknir
Samtals: 36642



